4. mars 2010

Red Hat og Microsoft námskeið í fullum gangi

Nú eru Red Hat og Microsoft námskeið í fullum gangi hjá Opnum kerfum. Red Hat námskeiðin henta vel fyrir Windows kerfisstjóra og notendur annarra stýrikerfa sem vilja auka við þekkingu sína á uppsetningu og kerfisstjórnun á Red Hat Enterprise Linux vélum. Fyrsta námskeiðinu á þessu ári, RH033, var að ljúka en RH133 tekur næst við og hefst þann 15. mars nk. Þriðja Red Hat námskeiðið, RH300 hefst svo 3. maí. Einnig er RHCT próf framundan þann19. mars og RHCE próf þann 7. maí. Við hvetjum áhugasama að að skoða námskeiðsskráningar og skrá sig hér.

Þann 15. mars verður svo Microsoft námskeiðið Innleiðing og rekstur á Hyper-V haldið, sem er 3 daga námskeið í uppsetningu og rekstri á Windows server 2008 Hyper. Einnig er kenndur rekstur á Hyper-V með Solution Center Virtual Machine Manager (VMM) og með PowerShell. Með þátttöku á Microsoft námskeiði hjá Opnum kerfum færð þú kennslu hjá kennara úr breiðum hópi sérfræðinga okkar sem ávallt eru með fingurinn á púlsinum á því nýjasta í Microsoft heiminum. Nánari upplýsingar um Microsoft námskeið og skráningu má finna hér.

Til baka | Aðrar fréttir