4. janúar 2010

Matís flytur í nýjar höfuðstöðvar

Í lok árs 2009 flutti Matís starfsemi sína í nýjar höfuðstöðvar að Vínlandsleið 12 og sameinuðu þar með starfsemina á höfuðborgarsvæðinu á einn stað. Að mörgu er að huga í flutningum sem þessum og komu Opin kerfi að því að flytja upplýsingakerfi Matís og sáu að auki um verkefnastýringu og samhæfingu.

Flutningarnir voru lýsandi dæmi um frábæra samvinnu starfsfólks Opinna kerfa og starfsfólks Matís og unnið var markvisst að lausn þeirra mála sem upp komu. Í heild gengu flutningarnir mjög vel fyrir sig enda einvala lið sem þar kom að verki.
„Flutningarnir gengu afar vel fyrir sig og þegar starfsfólk mætti til vinnu að Vínlandsleið 12 á mánudagsmorgni þá voru upplýsingakerfi komin upp og starfsemi gat hafist hnökralaust. Opin kerfi héldu afar vel utanum alla verkþætti sem snéru að upplýsingatækni og unnið var markvist að þeim málum sem þurfti að leysa. Það var virkilega gaman að vinna að þessu verkefni í svo samhentu teymi starfsmanna Opinna kerfa og Matís.“
Guðlaug Þóra Marinósdóttir, skrifstofustjóri Matís.

Til baka | Aðrar fréttir