22. febrúar 2010
Windows 7 uppfærslur
Fjöldi tölvunotenda sótti sér Windows 7 Release Candidate sem nú er að renna út. Microsoft býður þessum aðilum tvennskonar uppfærslumöguleika á tilboðsverði.
Frá og með 15. febrúar byrjuðu þessir aðilar að sjá skilaboð á tölvum sínum um að RC Betan myndi brátt renna út og minnti þá á að taka afrit af gögnum sínum.
Þann 1. mars mun RC Betan endurræsa sig eða frjósa á tveggja tíma fresti og þann 1. júní mun hún renna út og notendur munu ekki geta ræst stýrikerfið.
Tvennskonar leiðir eru í boði og fara þær eftir því hvort um einstakling eða fyrirtæki sé að ræða:
- Fyrir fyrirtæki eru í boði Open licence rafræn eignarleyfi.Viðskiptavinurinn fær þá sérstakt vefsetur sem heldur utan um viðkomandi Microsoft leyfi og getur sótt hugbúnaðinn þangað.
- Fyrir einstaklinga er ekki hægt að nota Windows 7 Home Premium uppfærsluna til að uppfæra RC en ef viðskiptavinur á Windows XP þá er hægt að nota þá uppfærslu.
Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Opinna kerfa.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

