12. september 2009

Símkerfi forsætisráðuneytisins öruggt

„Í nýlegri frétt á vef Ríkisútvarpsins kemur fram að auðvelt sé fyrir mann eins og tölvuhakkarann Kevin Mitnick að hakka sig inn í símkerfi, meðal annars hjá forsætisráðuneytinu.

Að sögn Hafþórs Hilmarssonar, sérfræðings í net- og samskiptalausnum hjá Opnum kerfum, þá er sú brella sem Mitnick beitti til að láta símanúmer forsætisráðuneytisins íslenska birtast þegar hann hringdi í Helga Seljan á mörkum þess að geta talist hökkun. Hafþór segir að Mitnick hafi ekki brotist inn í tölvukerfi ráðuneytisins og aldrei tengst símstöðinni, enda sé hún hvergi tengd við internetið.

Sú sjónhverfing sem Mitnick beitti fyrir áhorfendur Kastljóssins byggi á stillingu í hans eigin síma og stillingum í símkerfi símafyrirtækisins sem Mitnick er áskrifandi hjá. Nær allir SIP símar í heiminum bjóði upp á þann möguleika að stilla hvaða númer eigi að birtast þegar hringt er úr símanum.

„Það er hægt að beita svona brellum á Íslandi, þó svo að flestar almennar áskriftarleiðir sem okkur standa til boða loki á þennan möguleika. Fjölmargir geta því gert slíkt hið sama og hakkarinn gerði og það er í raun ekkert ólöglegt við það, svo lengi sem það er ekki gert í glæpsamlegum tilgangi. Þessi tækni er til dæmis notuð til þess að senda símanúmer hringjanda áfram til viðtakanda þegar símtal er flutt á milli símtækja. Enginn vafi er hins vegar á því að Kevin Mitnick er lifandi goðsögn í heimi tölvuhakkara“.

Hafþór starfar dags daglega sem sérfræðingur í net- og samskiptalausnum hjá Opnum kerfum og er með fróðustu mönnum um símstöðvar hérlendis. Hann segist hafa orðið mjög spenntur þegar kynnt var í sjónvarpsfréttum að hinn frægi hakkari hyggðist brjótast inn í íslenska símstöð. Vonbrigði Hafþórs voru að sama skapi mikil þegar í ljós kom að um brellu var að ræða sem ekki þarf neina sérstaka tölvuþekkingu til að framkvæma.“

Til baka | Aðrar fréttir