Vilt þú vaxa og dafna með okkur?
|
Opin kerfi ehf er leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni á Íslandi. Mannauður fyrirtækisins er forsenda þess árangurs sem fyrirtækið hefur náð og tryggir viðskiptavinum Opinna kerfa bestu og reiðanlegustu þjónustu sem völ er á. Tæknimaður á verkstæði Rafeindavirkjun eða sambærileg menntun er skilyrði, einungis vanir tæknimenn koma til greina. Viðkomandi verður að búa yfir faglegum áhuga og metnaði til að ná árangri í starfi, vera fær í mannlegum samskiptum og getu til að vinna vel undir álagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Sérfræðingur á Lausnasviði Við leitum að aðila með háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, kerfisfræði eða sambærilega menntun. MCSE gráða eða sambærileg sérhæfing er æskileg. Viðkomandi skal búa yfir minnst 5 ára reynslu af kerfisrekstri eða sambærilegum störfum. Reynslu af rekstri helstu Microsoft kerfislausna s.s. Active Directory, Exchange, Windows Server, SQL, ISA, SharePoint og System Center lausna. Við sækjumst eftir samstarfsmönnum með brennandi áhuga á upplýsingatækni og metnaði til að ná árangri í starfi. Úrræðasemi og geta til að vinna vel undir álagi, skipulögð, traust og öguð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum eru kostir sem við leitum eftir. Hugbúnaðarsérfræðingur á Lausnasviði Við leitum að aðila með háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, kerfisfræði eða sambærilega menntun. MCPD gráða eða sambærileg gráða er æskileg. Viðkomandi skal búa yfir minnst 5 ára reynslu af hugbúnaðargerð og reynslu af forritun í Microsoft.NET og Microsoft SharePoint. Við sækjumst eftir samstarfsmönnum með brennandi áhuga á upplýsingatækni og metnaði til að ná árangri í starfi. Úrræðasemi og geta til að vinna vel undir álagi, skipulögð, traust og öguð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum eru kostir sem við leitum eftir. Umsóknir sendist á starfsumsokn@ok.is |


Um okkur
Veftré
Hafa samband

