Opin kerfi styrkja skólastoðina
Opin kerfi hefur gefið Skólastoðinni 70 minnislykla, sem eru annars vegar tvö gígabæt og hinsvegar fjögur gígabæt að stærð. Heildarverðmæti gjafarinnar er í kringum 200.000 kr.
Viðbrögð við mikilli neyð margra fjölskyldna
Skólastoðin eru samtök sem stofnuð voru í enda sumars í þeim tilgangi að safna ritföngum og bókum fyrir skólabörn sem koma frá efnaminni fjölskyldum. Kostnaður við þessa innkaup hefur hækkað um tugi prósenta og margar fjölskyldur réðu ekki við útgjöldin nú í haust. Skólastoðin stóð fyrir söfnun sem fór fram 27. og 28. ágúst og gekk hún vonum framar, en eftir söfnunina var 500 ritfangapökkum úthlutað.
Ekkert mikilvægara en menntun barnanna
Það eru ekki eingöngu ritföng og bækur sem eftirspurn er eftir, en margir skólar eru farnir að krefjast þess að nemendur hafi undir höndum sér minniskubba. Tölvufyrirtækið Opin kerfi frétti af þessari þörf og ákvað þess vegna að leggja sitt af mörkum og gefa söfnuninni 70 minniskubba í stærðunum 2 og 4 Gb. „Við erum virkilega ánægð með hvernig bæði einstaklingar og fyrirtæki hafa brugðist við söfnuninni. Maður hefði ekki trúað þessu. En það virðast flestir vera sammála um það að ekkert sé mikilvægara en menntun barnanna okkar,“ segir Alma Tryggvadóttir, ein af stofnendum Skólastoðarinnar.
16 milljónir ritgerða á einum minnislykli
Hákon Davíð Halldórsson, markaðsstjóri Opinna kerfa segir fyrirtækið ánægt með að geta lagt eitthvað að mörkum til þessa góða málefnis. „Þessir minnislyklar sem Skólastoðin úthlutar á morgun eru af þeirri stærð sem flestir nota í skólum landsins.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

