27. júlí 2009
Microsoft vinnur áfram með íslendingum
|
Microsoft hefur samþykkt að bjóða Íslendingum áfram sérstakt evrugengi fram að áramótum með því að festa gengið við 130 krónur fyrir hverja evru. Með þessu fyrirkomulagi er skotið frekari stoðum undir endurreisn íslensks efnahagslífs með aðstoð Microsoft. Opin kerfi eru náinn samstarfsaðili Microsoft á sviði hugbúnaðarlausna, innleiðingar, ráðgjafar, sölu og þjónustu á Microsoft vörum og hugbúnaði. Innkaupa- og dreifingarsvið Opinna kerfa hafa frá árinu 2006 verið eini íslenski dreifingaraðili Microsoft hugbúnaðar og veita Microsoft endursöluaðilum ráðgjöf ásamt sölu á Microsoft leyfum. Nánari upplýsingar gefa Viðskiptastýring og Innkaupa- og dreifingarsvið Opinna kerfa. |


Um okkur
Veftré
Hafa samband

