|
Hafþór Hilmarsson, sérfræðingur hjá Opnum kerfum ehf. lauk um helgina vottun sem Cisco CCIE Voice sérfræðingur. Cisco CCIE vottun er talin meðal æðstu vottana sem hægt er að öðlast á sviði upplýsingatækni, og gjarnan kölluð doktorsgráða í samskiptalausnum.
Hafþór hefur með vottuninni sýnt fram á afburða þekkingu og hæfni í samskiptalausnum. Til þess að hljóta þessa eftirsóknarverðu vottun þarf að þreyta bæði skriflegt og verklegt próf, þar sem að reynir gríðarlega á færni þátttakenda við hönnun, uppsetningu og úrlausn tæknilegra mála sem fylgja samskiptakerfum hjá fyrirtækjum.
Hafþór er fyrsti Íslendingurinn sem hlýtur þessa merku vottun á sviði VOICE og bætist í hóp CCIE sérfræðinga Opinna kerfa, en auk hans bera þeir Þorsteinn Einarsson og Guðbjarni Guðmundsson CCIE vottun á sviði Routing and Switching hjá Cisco.

|

|