17. febrúar 2009

Ríkissaksóknari og Opin kerfi endurnýja samning

Embætti Ríkissaksóknara hefur endurnýjað samning sinn við Opin kerfi um alrekstur á prentkerfi.

 

Samningurinn felur í sér að Opin kerfi veita embætti Ríkissaksóknara alla þjónustu og rekstrarvöru tengda prenturum.  Starfsmenn Ríkissaksóknara einbeita sér að sinni kjarnastarfsemi á meðan sérfræðingar Opinna kerfa hlúa að prentumhverfinu.

 

Með þessari þjónustu hjá Opnum kerfum næst allt að 20% hagræðing.  Umhverfið er einsleitt og staðlaðar uppsetningar, ásamt reglulegum heimsóknum tengiliða sem gjörþekkja prentumhverfi þeirra, auðvelda starfsfólki Ríkissaksóknara að sinna störfum sínum. Uppitíminn á prenturum er til fyrirmyndar og embætti Ríkissaksóknara hefur 100% sýn yfir kostnað tengdan rekstri prentkerfisins.

 

Að sögn Jennýjar H. Björnsdóttur, skrifstofustjóra hjá embættinu, var mikill áhugi fyrir því að endurnýja samninginn, þar sem þjónusta Opinna kerfa er til fyrirmyndar.

 

HP prentbúnaður sá besti sem völ er á

Með Síðu fyrir síðu, alrekstri á prentumhverfi, fá fyrirtæki aðgang að HP prentbúnaði. HP hafa verið leiðandi í framleiðslu bleksprautuprentara sem og í þróun og framleiðslu laserprentara. Viðskiptavinir vita að HP prentarar standa fyrir gæði, áreiðanleika og tæknilega yfirburði enda hafa HP prentarar verið valdir bestu prentararnir af lesendum PC Magazine, fimmtán ár í röð.

 

Síðu fyrir síðu er alrekstrarþjónusta á prenturum sem stendur fyrirtækjum til boða. Með Síðu fyrir síðu greiðir þú einungis fyrir prentaðar blaðsíður.

 

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hér: /Fyrirtaeki/Lausnir/Rekstrarlausnir/Rekstur_prentkerfa/

 

Til baka | Aðrar fréttir