5. apríl 2006

Belgingur - veðurspáin í þéttu neti

Í tæp tvö ár hefur Reiknistofa í veðurfræði (RV) reiknað veðurspár í þéttu neti fyrir landið og miðin, landi og þjóð til hagsældar. Spárnar eru birtar á www.belgingur.is og uppfærast fjórum sinnum á sólarhring. Ólafur Rögnvaldsson, veðurfræðingur, er einn starfsmanna RV sem ásamt Linux sérfræðingum Opinna kerfa, hefur hannað veðurspárkerfi sem er margfalt hraðara en það sem áður hefur verið notað.

Snjólfur lítur dagsins ljós
„Í upphafi var eingöngu reiknað með 9 km láréttri upplausn fyrir landið en að auki var veður yfir SV-landi reiknað með 3 km upplausn. Þessir reikningar fóru fram á tölvueykinu Sleggjunni,“ segir Ólafur. „Í kjölfar hitabylgjunnar miklu er gekk yfir landið síðsumars 2004, tók sú mæta vél sótt mikla og hefur ekki borið sitt barr síðar. Í framhaldi krankleika þessa voru reikningar tímabundið skornir niður við neglur. Með tilkomu eykisins Snjólfs á vormánuðum 2005 upphófust þó bjartari tímar á ný. Naut þá landslýður aftur afurða 3 km netsins og nú fyrir landið allt. Voru veður reiknuð 24 klukkustundir fram í tímann einu sinni á dag. Þessir reikningar vor þó það þungir að vélin var hátt í fjórar klukkustundir að stauta sig fram úr þeim.“

Svarkur afkvæmi nýrra samninga
Í kjölfar samninga milli RV og Veðurstofu Íslands var ráðist í uppsetningu tölvueykisins Svarks. „Helstu nýmæli í þessari vél er að nú er reiknað á 64 bita Opteron graðjálkum, samantengdum yfir Infiniband net. Það net er þeim eiginleika gætt að eftir því skjótast gagnabitar hraðar en hönd á festir, jafnt núll og einir!“ segir Ólafur. Þessi vél skilar 36 klukkustunda spám á 3 km neti á um klukkustund. Spárnar eru núna uppfærðar fjórum sinnum á sólarhring, í stað einu sinni áður.

Ný tækni og hraðamet
Svarkur samanstendur af tólf HP ProLiant DL145G netþjónum með tveggja 64 bita Opteron örgjörvum, sem þykja afburðargóðir. Það sem gerir eykið enn öflugra er að samtengibúnaðurinn milli vélanna er svokallað Infiniband, þannig að hver þjónn hefur tvöfalt Infiniband tengi (10Gb) sem tengist í 20 porta Infiniband beini. Þessi aðferð er mun hraðvirkari en klassískt Gigabyte net sérstaklega hvað biðtíma (e. Latency) varðar. Biðtími á dæmigerðu GB neti er um 70-90 míkrósekúndur, en Infiniband er undir 5 míkrósekúndur.

Glæst framtíðarsýn
„Þær framtíðarsýnir sem birtast á www.belgingur.is eru eins og þær gerast bestar í gervöllum heiminum, og þótt víðar verði leitað,“ segir Ólafur. „Sýnirnar eru svo kyngimagnaðar að hinum almenna borgara gefst nú loks kostur á að verða spámaður í eigin föðurlandi.“

Hjá RV starfa ásamt Ólafi veðurfræðingarnir Haraldur Ólafsson og Hálfdán Ágústsson. Stefnt er á enn frekari landvinninga í framtíðinni með 500 m reiknineti og eru vonir bundnar við að fá enn betri spár, einkum fyrir vind og vindhviður. Við getum nú þegar farið að hlakka til en Ólafur vill þó fyrra sig allri lögfræði-ábyrgð: „Ef spárnar verða ykkar að aldurtila þá þýðir sko ekkert að koma grenjandi til okkar, þær eru settar fram af fullkomnu ábyrgðarleysi og hananú. Ekki svo að skilja að núverandi spár séu lakar, sei sei nei“, segir Ólafur að lokum.


Frá vinstri: Ólafur Rögnvaldsson, Hálfdán Ágústsson og Haraldur Ólafsson frá Reiknistofu í veðurfræði.
Til baka | Aðrar fréttir