Ábyrgðarþjónusta
Hlutverk ábyrgðarþjónustu er að uppfylla ábyrgðarskilmála framleiðenda og meðhöndlun varahluta. Opin kerfi eru eini viðurkenndi HP þjónustuaðilinn á íslandi HP Authorized Service Partner (ASP) / HP Home product Service Partner (HPSP)
HP gerir strangar kröfur til þjónustuaðila um viðurkenningu og liggja þar að baki fjölmörg próf tæknimanna sem þarf til að uppfylla skilyrði um vottun á ábyrgðarþjónustu.
Hvað gerir HP viðurkennda þjónustuaðila svona sérstaka?
Sérfræðingar sem bera merki HP Authorised Service Partner hafa vottun um getu til að mæta þörfum viðskiptavina með sérhæfða vöruþekkingu í þjónustu, bæði í ábyrgðum sem og hærra þjónustustigi, HP CarePack.
HP Authorised Service Partners veita ábyrgðarþjónustu á allri HP vörulínunni á hverju markaðssvæði fyrir sig og tekur mið af ábyrgðarskilmálum HP.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

