
Þjónustustjórnun
Opin kerfi hafa að leiðarljósi í starfsemi sinni að veita framúrskarandi þjónustu, byggja upp traust og gott samstarf við viðskiptavini og uppfylla ítrustu kröfur um sérfræðiþekkingu, hagkvæmni, sveigjanleika og skjót viðbrögð. Lausnasvið Opinna kerfa tekur að sér verkefni á sviði ráðgjafar, lausna og samþættingar kerfa auk almennrar þjónustu í upplýsingatækni. Við verkefnastjórnun er beitt Prince2 aðferðafræðinni og hún sniðin að stærð og eðli verkefna hverju sinni.
Í ferlavinnunni er stuðst við bestu aðferðir ITIL (Information Technology Infrastructure Library).
ITIL er útbreiddasta aðferðarfræðin fyrir altæka stjórnun þjónustu- og verkferla í heiminum í dag.
ITIL veitir heildstætt safn bestu aðferða til stjórnunar þjónustuferla, sem stuðla að árangursríkum rekstri með góðri nýtingu upplýsingakerfa. Opin kerfi eru fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem innleiddi þessa hugmyndafræði.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

