
Open Source ráðgjöf
Hagræðing er lykilorð í rekstri upplýsingakerfa í dag. Allar aðgerðir til hagræðingar verða að vera hugsaðar til enda svo ekki komi fram óvæntur kostnaðarauki á öðrum sviðum. Nauðsynlegt er því að ná heildarsýn á umhverfið og spyrja réttra spurninga.
Með teymi sérfræðinga sem þekkja vel til þeirra möguleika sem felast í notkun frjáls hugbúnaðar og Microsoft geta Opin kerfi aðstoðað viðskiptavini við að setja fram markvissar og raunhæfar áætlanir um innleiðingu frjáls hugbúnaðar og veitt öflugan stuðning við að þeim sé náð.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

