Microsoft ráðgjöf

Hugbúnaðar- og þjónustusamningar eru gjarnan fyrirferðarmiklir kostnaðarliðir í rekstri upplýsingatæknideilda. Slíkir samningar geta verið flóknir og erfitt að hafa yfirsýn yfir þá, þar sem margar þjónustuleiðir geta verið hluti af stórum samningum. Í mörgum tilfellum er verið að greiða fyrir þjónustu sem ekki er verið að nýta og jafnvel er greitt fyrir notkunarrétt á samskonar þjónustu eða lausnum frá mörgum aðilum. Tækifærin geta legið í því að einfalda samninga og tryggja að þær lausnir sem verið er að greiða fyrir komist í notkun og skili arðsemi.
Sérfræðingar Opinna kerfa hafa mikla reynslu og djúpa þekkingu á hugbúnaðarsamningum og veita ráðgjöf til fyrirtækja af öllum stærðargráðum.

  • Microsoft Software Assurance

    Innleiðing og uppfærsla lausna frá Microsoft (Deployment planning)