
Cisco Námskeið
Opin kerfi hafa selt og þjónustað Cisco búnað í mörg ár. Sérfræðingar félagsins búa því yfir mikilli reynslu af sölu, uppsetningu og þjónustu Cisco búnaðar, sem og hönnun á netkerfum.
Opin kerfi hafa einnig um langa hríð sinnt kennslu í netfræðum, atriðum sem varða netkerfi, uppbyggingu og virkni þeirra. Námskeið sem Opin kerfi halda koma inn á grundvallaratriði sem snúa að netkerfum en þau taka þó sérstaklega mið af Cisco netbúnaði.
Kennarar á námskeiðum Opinna kerfa eru starfsmenn með ýmsa sérhæfingu og má þar nefna VoIP, Wireless, Routing and switching, security og kennslu. Þessir starfsmenn hafa ma.: CCIE (Cisco Certified Internetwork Expert), CCNP (Cisco Certified Network Professional), CCSP (Cisco Certified Security Professional), CCAI (Cisco Certified Academic Instructor), CCDP (Cisco Certified Design Professional), CCDA (Cisco Certified Design Associate), CCNA (Cisco Certified Network Associate) auk ýmissa annarra prófgráða frá Cisco Systems.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

