
Prentrekstur
OK Prentrekstur byggir á vélbúnaði og hugbúnaði frá HP og öðrum samstarfsaðilum, sem tryggir viðskipta-vinum breitt úrval eininga og lausna á markaðnum. Viðskiptavinir hafa val um fleiri en eina útfærslu hverju sinni og geta sniðið lausnirnar eftir sínum þörfum. Auk þess stendur viðskiptavinum til boða úrval þjónustusamninga allt frá rekstrarvörusamningum til heildarreksturs á prentumhverfi sínu.
Fyrirtæki og stofnanir geta náð fram umtalsverðri hagræðingu með því að ná tökum á rekstri prentara og fjölritunartækja. Opin kerfi bjóða hágæða búnað og sveigjanlegar lausnir frá HP og öðrum samstarfsaðilum sem geta lækkað kostnað við prentun og fjölritun um allt að 30%.
Ein lausn hentar ekki öllum, reyndir sérfræðingar Opinna kerfa veita ráðgjöf um rétta samsetningu prentbúnaðar með tilliti til staðsetningar, notkunar og rekstrarkostnaðar hverju sinni.
Rekstrarvörusamningar
Með rekstrarvörusamningi lækkar verð á prentdufti umtalsvert án skuldbindingar um umfang prentunar. Samningsaðilar njóta sérkjara á rekstrarvöru og þeim búnaði sem keyptur er við upphaf rekstrarvörusamnings. Að auki er heimilt að setja eldri HP prentara á sama rekstrarvörusamning og lækka þannig rekstrarkostnað hans um leið. Gildistími rekstrarvörusamnings er frá 3-5 árum. Rekstrarvörusamningar eru eingöngu í boði með völdum HP prenturum.
Alrekstur - allt innifalið
Þessi lausn felur í sér að sérfræðingar Opinna kerfa sjá um allan rekstur prentara hjá viðskiptavinum, allt frá fyrirbyggjandi viðhaldi til umsýslu á rekstrarvöru.Sérfræðingar Opinna kerfa sjá um uppsetningu og stillingar á vél- og hugbúnaði sem er tilgreindur inni í þjónustusamningunum og bera ábyrgð á því að prentumhverfið sé starfrækt þegar á þarf að halda.
Alrekstur - skiptur kostnaður
Með þessari lausn er greiddur fastur kostnaður fyrir leigu á prentbúnaði og breytilegur kostnaður fyrir prentun, eftir því hvaða pretnarar eru notaðir hverju sinni. Með lausninni felst aukinn sveigjanleiki og um leið minni óvissa um rekstrarkostnað á prentaraumhverfi. Sérfræðingar Opinna kerfa sjá um uppsetningu og þjónustu á prenturum. Í þessari lausn lækkar kostnaður á hverja prentaða síðu eftir því sem prentað magn eykst.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

