
Rekstrarhandbók
Rekstrarhandbók OR er gæðahandbókarkerfi sem er þróað af Orkuveitu Reykjavíkur og Opnum kerfum. Kerfið er sniðið að stórum sem smáum fyrirtækjum sem vilja aðgengilegt kerfi til að halda utan um gæðaskjöl, rýniferla og innri úttektir. Rekstrarhandbók OR tekur mið af gæðastöðlum og skilyrðum sem sett eru til vottunar gæðakerfa. Um er að ræða lausn sem færir fyrirtækjum tæki til að aga rekstur sinn á hagkvæman hátt, hvort sem ætlunin er að stefna á gæðavottun eða ekki.
Styrkur kerfisins felst í einfaldleika þess, sveigjanleika og aðgengi. Notendur vinna gæðaskjöl í algengustu ritvinnslukerfum og því þarf ekki að kenna notendum á nýjan slíkan hugbúnað. Hægt er að byggja upp mismunandi handbækur og aðgreina út frá innra skipulagi eða rekstrareiningum. Með netvafra geta allir notendur, sem til þess hafa réttindi, skoðað gæðaskjöl fyrirtækisins.
Innleiðingarferlið tekur alla jafna 3-4 vikur frá undirskrift þangað til fyrstu skjöl eru sett inn í Rekstrarhandbókina en fer það eftir tíma tæknimanna og hversu langt fyrirtæki eru komin í gæðastarfinu.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

