
Office 365
Office 365 hentar öllum fyrirtækjum
Í stað þess að fjárfesta í vélbúnaði, rekstri og aðstöðu, þá er einfallt að stofna aðgang að Office 365 og byrja að nota eina öflugustu hugbúnaðarsvítu sem býðst. Í stað fjárfestingar er miðlægt tölvuumhverfi viðráðanlegur rekstur, sem vex með fyrirtækinu og er ávallt í hlutfalli við fjölda starfsmanna. Ef kerfisstjórar eru meira og minna bundir af daglegum rekstri póstkerfa og skráarþjóna, þá er kominn tími til breytinga. Í stað fjárfestingar í nýju umhverfi er góður valkostur að huga að grunnþjónustu í skýinu. Pósturinn og gagnageymslan vinna saumlaust með fyrirliggjandi umhverfi fyrirtækisins. Nýttu áfram fyrirliggjandi fjárfestingu og fáðu á sama tíma aðgang að nýjustu tækni í gegnum Office 365.
Ör þróun í samskiptatækni og aukinn fjöldi tækja sem starfsfólk vill nota til starfans, kalla á aukna fjárfestingu í innviðum upplýsingatækninnar. Með Office 365 sameinast fjölbreytt aðgengi starfsmanna að upplýsingum og kerfum óháð staðsetningu og notendabúnaði, og öryggi upplýsinga og einfaldari umsýsla kerfa. Samþætting Office 2010, smáskilaboða og fjarfunda með Lync, samvinna og utanumhald upplýsinga í Sharepoint og bundið saman með samþættum samskiptum í Exchange póstþjóni.
Ef fyrirtækið þitt er að kaupa hýsta póstþjónustu í eldri útgáfu af Exchange, öðru póstkerfi, pop pósti eða vefpósti. Þá er hér á ferðinni gott tækifæri á að uppfæra samskiptin í eitt öflugasta samskipta umhverfi sem býðst. Taktu saman í einu samþættu umhverfi, gagnaumsýslu, samþætt samskipti, fjarfundi og veflæga samvinnu á einu bretti.
Microsoft Office 2010 er mun meira en bara Excel, Word og Powerpoint. Office svítan er orðin mjög öflugt samþættingar og samvinnu umhverfi, sem gerir fólki kleift að vinna saman og deila upplýsingum í rauntíma þar sem það er statt hverju sinni. Upplifðu sprengingu í framleiðni starfsmanna með Office 2010 í hýstu umhverfi Microsoft. Prófaðu Microsoft Office 365 strax í dag.
Ég vil prófa


Um okkur
Veftré
Hafa samband

