CRM lausnir

CRM stendur fyrir Customer Relationship Management og er aðferðarfræði sem snýst um að halda utan um og vinna með samskipti við viðskiptavini, birgja og hlutaðeigandi aðila á einum stað.

Microsoft Dynamics CRM er viðskiptatengslalausn sem hefur það markmið að auka hagkvæmni í rekstri með því að:

1. Hámarka nýtingu sölu-og markaðstækifæra
2. Hækka þjónustustig fyrirtækisins
3. Auka yfirsýn stjórnenda

Microsoft Dynamics CRM (Customer Relationship Management) viðskiptatengslakerfið er eitt af þeim kerfum sem hefur á síðustu árum verið að sanna sig í rekstri fyrirtækja. Þau fyrirtæki sem hafa innleitt viðskiptatengslakerfið hafa vaxið hraðar en önnur fyrirtæki í sambærilegum rekstri og sýnt að viðskiptavild viðskiptavina þeirra hefur aukist að sama skapi. Með því að samþætta upplýsingar frá öðrum stoðkerfum inn í Microsoft Dynamics CRM skapast upplýsingatorg sem hefur að geyma þær upplýsingar sem starfsmenn viðkomandi fyrirtækis þurfa til að taka réttar ákvarðanir ásamt því að hafa aðgengi að þeim samskiptum sem viðskiptamenn hafa átt við fyrirtækið í gegnum aðra starfsmenn. Með þessu myndast betri sýn á viðskiptamanninn innan viðkomandi fyrirtækisins og gefur þ.a.l. réttari mynd af þeim samskiptum sem hann hefur átt við fyrirtækið. Þjónustustigið hækkar þar sem allir starfsmenn hafa aðgengi að þeim upplýsingum sem þeir þurfa til að tryggja að viðskiptamaðurinn fái lausn sinna mála og sá eltingaleikur sem fer í að finna réttan aðila innan fyrirtækisins því óþarfur.

Nýjasta útgáfan ber heitið Microsoft Dynamics CRM 2011. Alls hafa verið gerðar um 400 breytingar í þessari nýju útgáfu. Á meðal nýjunga eru:

  • Endurbætt tenging við Outlook
  • Mælaborð sem má sérsniða eftir þörfum notenda
  • "Roled based security" ásamt "field security" sem auðveldar alla aðgangsstýringu og uppsetningu á spjöldum
  • Stuðningur við samþættingu Microsoft Dynamics Nav / AX og Microsoft Dynamics CRM 2011
  • Innbyggðar tengingar við SharePoint 2011 til að auðvelda geymslu skjala
  • Landing síður sem auka möguleika á skráningum bæði innan og utan frá
  • Stuðningur við "Cloud computing" hefur verið aukin sem og stuðningur við sérskriftir frá þriðja aðila
  • Betri stuðningur við 64 bita stýrikerfi

Opin kerfi hafa í dag sérfræðinga á öllum sviðum viðkomandi lausna hvort sem er um að ræða uppsetningu á grunnkerfum, kennslu, þróun, hönnun eða að búa til viðskiptasýn á CRM í gegnum SQL reporting service eða OLAP teninga þar sem viðskiptagreind er ofan á Microsoft Dynamics CRM.

Nánari upplýsingar veitir Stefán Rafn Stefánsson, stefan(hjá)ok.is, í síma 570-1000.

Kynningarefni (pdf)
  • Microsoft Dynamics CRM

    Umsjón viðskiptatengsla