Netafritun

Netafritun Opinna kerfa er hýst afritunarlausn fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja afrita á öruggan máta án þess að hafa afritunarbúnað hjá sér. Afritun fer fram yfir netið og eru afrit geymd í vélasal Opinna kerfa.

Netafritunin gerir viðskiptavininum kleift að stýra alfarið eigin afritunartöku, hvað varðar svæði sem eru afrituð og hvenær tíma dags afrit eru tekin. Afrit eru tekin með svokallaðri "incremental forever" aðferðarfræði sem þýðir að einungis eru afrituð þau gögn sem hafa breyst síðan síðasta afrit var tekið.

  • OK Netafritun

    Afritun sniðin að þínum þörfum